Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arda Guler ósáttur - „Ekki lagður í einelti"
Mynd: EPA
Arda Guler, leikmaður Real Madrid, er ósáttur með ummæli Serhat Pekmezci, fyrrum starfsmann Fenerbahce, en hann sagði að leikmenn Real Madrid væru að leggja Guler í einelti.

Guler gekk til liðs við Real Madrid frá Fenerbahce árið 2023 en Pekmezci átti mikinn þátt í sölunni.

„Það er verið að leggja Arda Guler í einelti, ekki að hann hafi kvartað undan því við mig en ég vissi að þetta myndi gerast. Ég sagði honum að vera þolinmóður. Það eru leikmenn þarna sem samþykkja hann ekki, það eru leikmenn með stórt egó," sagði Pekmezci.

„Það er sorglegt að sjá yfirlýsinguna hjá fyrrum yfirmanni njósnadeildar Fenerbahce, Hr. Serhat Pekmezci, sem lék lykilhlutverk í upphafinu á ferlinum mínum," sagði Guler.

„Það var tekið vel á móti mér frá fyrsta degi hérna. Ég er mjög stoltur af því að vera leikmaður Real Madrid og vonast til að bera þetta merki næstu árin. Við erum með sterkt lið og ég er ánægður og það er minn heiður að deila búningsklefa með öllum liðsfélögunum. Ég óska vinsamlegast eftir því að fólk muni ekki veita neinu, sem tengist þessu máli, athygli."
Athugasemdir
banner
banner