Stjarnan lék í gær æfingaleik gegn danska 1. deildar liðinu B93. Spilað var á Spáni hvar liðin eru í æfingaferð. Íslandsmótið hefst eftir tvo mánuði og seinni hluti dönsku 1. deildarinnar hefst eftir tvær vikur. Þetta var seinni leikur Stjörnunnar í æfingaferðinni.
Leikurinn í gær endaði með 3-2 sigri Stjörnunnar og voru það þeir Jóhann Árni Gunnarsson og Haukur Örn Brink sem skoruðu mörkin, Haukur skoraði tvennu. B93 komst í 0-2 í leiknum en Stjarnan kom til baka.

Haukur skoraði líka í æfingaleik gegn úkraínska liðinu Karpaty Lviv á sunnudag, skoraði þá sigurmarkið í 2-1 sigri.
Hann er tvítugur kantmaður sem skrifaði undir fjögurra ára samning við Stjörnuna fyrir akkúrat ári síðan. Hann kom við sögu í ellefu leikjum á síðasta tímabili, spilaði ekki í um tvo mánuði þar sem hann reyndi fyrir sér í háskólaboltanum í Bandaríkjunum en sneri svo til baka í Garðabæinn.
Siðasta sumar varð Haukur í öðru sæti í einn á einn mót Adams Pálssonar og Fótbolta.net.
Athugasemdir