Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 13:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Igor Tudor að taka við Tottenham
Mynd: EPA
Igor Tudor hefur samkvæmt blaðamönnunum Michael Bridge og Gianluca Di Marzio samþykkt að taka við sem bráðabirgðastjóri Tottenham út þetta tímabil. Thomas Frank var látinn fara frá Tottenham á miðvikudagsmorgun eftir dapurt gengi í úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Það á eftir að ganga frá nokkrum lausum endum áður en þessi fyrrum stjóri Juventus tekur við, en munnlegt samkomulag er í höfn.

Tudor mun fljúga aftur til Króatíu áður en hann mætir aftur í byrjun næstu viku. Tottenham ætlar svo að ráða stjóra til frambúðar í sumar.

Tudor er 47 ára og er þekktastur fyrri tíma sinn hjá Juventus sem leikmaður. Hann lék á sínum tíma 55 A-landsleiki og hefur stýrt nokkuð stórum liðum á ferlinum. Hann hefur verið hjá Juventus, Marseille, Hajduk Split, Udinese, PAOK og Galatasaray.
Athugasemdir
banner
banner