Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 14:30
Elvar Geir Magnússon
Ofnotkun á VAR - „Á bara að vera til að leiðrétta augljós mistök“
Rosetti segir að notkun á VAR sé að færast í ranga átt.
Rosetti segir að notkun á VAR sé að færast í ranga átt.
Mynd: EPA
Roberto Rosetti, yfirmaður dómaramála hjá UEFA, varar við því að notkun á VAR myndbandsdómgæslu sé að færast frá upphaflegum tilgangi sínum og sé ofnotuð.

Talið er að hann sé aðallega að beina orðum sínum að ensku úrvalsdeildinni þar sem VAR er að hirða fyrirsagnirnar nánast í hverri umferð.

„Við höfum gleymt aðeins upphaflega tilgangnum með VAR. Við töluðum um að leiðrétta augljós mistök. Þegar það eru gerð klár mistök þá virkar tæknin frábærlega," segir Rosetti.

„Þegar kemur að huglægu mati er tæknin erfiðari. Þess vegna var ákveðið að nota þetta þegar það eru sannanir fyrir augljósum mistökum. Við getum ekki færst í þá átt að nota VAR í öllum atriðum. Við elskum fótboltann eins og hann er."

Þá gagnrýnir Rosetti ofnotkun á því að skoða atvik í mjög hægum endursýningum til að greina brot sem virðast algjörlega minniháttar í rauntíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner