Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Slot svartsýnn: Búumst ekki við jákvæðri niðurstöðu
Mynd: EPA
„Við búumst ekki við jákvæðri niðurstöðu," sagði Arne Slot, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag. Hann var spurður út í Wataru Endo sem meiddist illa á ökkla gegn Sunderland á miðvikudagskvöld.

Endo er einn af sex leikmönnum sem hafa leyst stöðu hægri bakvarðar hjá Liverpol á tímabilinu. Líkur eru á því að Endo spili ekki meira á þessu tímabili.

„Við þurfum að bíða og sjá. Við búumst við því að hann verði frá í nokkuð langan tíma. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hægri bakvörður hjá okkur meiðist. Við þurfum að finna lausnir og halda áfram að spila vel," sagði Slot.

Conor Bradley er frá út tímabilið og Jeremie Frimpong verður líklega ekki klár fyrir leikinn gegn Brighton í fjórðu umferð enska bikarsins annað kvöld.

Dominik Szoboszlai snýr til baka eftir eins leiks bann og hann hefur leyst stöðu hægri bakvarðar. Joe Gomez kom inn á gegn Sunderland og er einnig kostur í bakvörðinn ásamt Curtis Jones.
Athugasemdir
banner
banner