Það fóru þrír leikir fram í efstu deild franska boltans í dag þar sem Hákon Arnar Haraldsson var á sínum stað í byrjunarliði Lille.
Lille tók á móti Brest og stjórnaði ferðinni í fyrri hálfleik án þess að takast þó að skora. Gestirnir náðu forystunni í síðari hálfleik en Gaetan Perrin jafnaði á 71. mínútu.
Hákoni Arnari var skipt af velli fyrir Olivier Giroud skömmu síðar en hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn, svo lokatölur urðu 1-1.
Lille hefur verið að ganga hörmulega að undanförnu og er aðeins búið að vinna einn af síðustu átta leikjum sínum í öllum keppnum. Liðið er búið að ná í tvö stig úr síðustu sex deildarleikjum og situr í fimmta sæti.
Lille er í harðri evrópubaráttu með 34 stig eftir 22 umferðir, þremur stigum fyrir ofan Strasbourg sem gerði jafntefli við Marseille í dag.
Amine Gouiri lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir Mason Greenwood og skoraði svo sjálfur til að tvöfalda forystuna í upphafi síðari hálfleiks, en gestirnir frá Strasbourg náðu að vinna sig aftur í leikinn og bjarga stigi á 97. mínútu.
Lokatölur urðu 2-2 og er Marseille í fjórða sæti með 40 stig, níu stigum meira heldur en Strasbourg.
Að lokum sendi Lens skýr skilaboð í titilbaráttunni þegar liðið heimsótti Paris FC.
Wesley Saïd skoraði tvennu í fyrri hálfleik og innsiglaði Florian Thauvin sigurinn með marki úr vítaspyrnu eftir leikhlé, en markaflóðið var ekki búið.
Allan Saint-Maximin og Rayan Fofana var skipt inn af bekknum á sama tíma og áttu þeir eftir að tengja í tvígang til að klára leikinn með fimm marka sigri. Saint-Maximin lagði síðustu tvö mörk leiksins upp fyrir Fofana til að endurheimta toppsæti Ligue 1 með stæl.
Saint-Maximin er nýlega genginn til liðs við Lens og er búinn að skora eitt mark og gefa tvær stoðsendingar í þremur leikjum hjá sínu nýja félagi - komandi inn af bekknum.
Lens er einu stigi fyrir ofan PSG eftir að ríkjandi meistarar misstigu sig óvænt gegn Rennes í gær.
Lille 1 - 1 Brest
0-1 Remy Labeau Lascary ('58)
1-1 Gaetan Perrin ('71)
Marseille 2 - 2 Strasbourg
1-0 Mason Greenwood ('14)
2-0 Amine Gouiri ('47)
2-1 Sebastian Nanasi ('73)
2-2 Joaquin Panichelli ('97, víti)
Paris 0 - 5 Lens
0-1 Wesley Said ('24)
0-2 Wesley Said ('38)
0-3 Florian Thauvin ('58, víti)
0-4 Rayan Fofana ('90)
0-5 Rayan Fofana ('95)
Athugasemdir




