Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 22:05
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Real Madrid rúllaði yfir Sociedad
Mynd: EPA
Real Madrid 4 - 1 Real Sociedad
1-0 Gonzalo Garcia ('5 )
1-1 Mikel Oyarzabal ('21 , víti)
2-1 Vinicius Junior ('25 , víti)
3-1 Federico Valverde ('31 )
4-1 Vinicius Junior ('48 , víti)

Real Madrid tók á móti Real Sociedad í lokaleik kvöldsins í spænska boltanum og voru fimm mörk skoruð, þar af þrjú úr vítaspyrnum.

Gonzalo García skoraði snemma leiks eftir frábæra fyrirgjöf frá Trent Alexander-Arnold en Mikel Oyarzabal jafnaði muninn með marki úr vítaspyrnu eftir glæfralega tæklingu Dean Huijsen innan vítateigs.

Fjórum mínútum síðar fékk Vinícius Júnior dæmda vítaspyrnu á hinum endanum eftir að hafa platað bakvörðinn Jon Aramburu upp úr skónum. Aramburu gerðist brotlegur og skoraði Vinícius sjálfur af vítapunktinum.

Federico Valverde tvöfaldaði forystu heimamanna með glæsilegu skoti frá vítateigslínunni eftir að leikmenn Sociedad gáfu honum alltof mikið pláss til að athafna sig.

Staðan var 3-1 í leikhlé og hófst seinni hálfleikurinn á fjórða marki heimamanna, eftir enn eina vítaspyrnuna. Aftur var það Aramburu sem gerðist sekur um heimskulegt brot á Vinícius innan vítateigs og aftur skoraði Brasilíumaðurinn af vítapunktinum til að innsigla sigurinn.

Orri Steinn Óskarsson kom inn af bekknum á 60. mínútu en tókst ekki að minnka muninn frekar, svo lokatölur urðu 4-1.

Þetta er áttundi sigur Real Madrid í röð í La Liga og fara lærlingar Álvaro Arbeloa á toppinn, með 60 stig eftir 24 umferðir. Þar sitja þeir tveimur stigum fyrir ofan Spánarmeistara Barcelona sem eiga leik til góða.

Orri og félagar í liði Real Sociedad voru ósigraðir í ellefu leikjum í röð í öllum keppnum fyrir tapið í dag. Þeir sitja í áttunda sæti spænsku deildarinnar, fjórum stigum frá evrópusæti.
Athugasemdir
banner
banner