fim 14. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ramos ekki með á morgun og missir af leiknum gegn Leipzig
Sergio Ramos verður ekki með á morgun
Sergio Ramos verður ekki með á morgun
Mynd: Getty Images
Spænski miðvörðurinn Sergio Ramos mun ekki þreyta frumraun sína með Paris Saint-Germain á morgun eins og til stóð en Le Parisien tók til baka þá frétt um að hann myndi spila.

Þessi 35 ára gamli varnarmaður gekk til liðs við PSG í sumar á frjálsri sölu frá Real Madrid en hann hefur ekki spilað leik fyrir félagið vegna meiðsla.

Le Parisien greindi frá því í gær að Ramos yrði með á morgun gegn Angers í deildinni en hefur nú dregið það til baka. Ramos verður ekki klár fyrir leikinn og missir einnig af Meistaradeildarleiknum gegn RB Leipzig.

Ramos er ekki byrjaður að æfa með liðinu og þurfa því stuðningsmenn að bíða lengur eftir eldskírn hans. Lionel Messi missir einnig af leiknum en hann spilar með argentínska landsliðinu í nótt áður en hann snýr aftur til Frakklands.

Sjá einnig:
PSG verður án Messi en Ramos er klár
Athugasemdir
banner
banner
banner