Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 19:22
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta býst við að meiðslin séu smávægileg
Ben White hefur komið við sögu í 19 leikjum það sem af er tímabils.
Ben White hefur komið við sögu í 19 leikjum það sem af er tímabils.
Mynd: EPA
Arsenal fór létt með Wigan í 32-liða úrslitum enska bikarsins í dag og svaraði Mikel Arteta spurningum eftir 4-0 sigur.

Hann ræddi um meiðslavandræði Arsenal eftir að Ben White haltraði af velli í sigrinum. Þá átti Riccardo Calafiori að byrja í vinstri bakverði en meiddist í upphituninni og vakti athygli að Martin Ödegaard var ekki með í hóp.

„Við verðum að bíða og sjá en þetta lítur ekki út fyrir að vera alvarlegt," sagði Arteta. „Við munum sjá á næstu sólarhringum hvort Riccardo og Ben geti verið með í hóp gegn Wolves."

Arsenal heimsækir botnlið Wolves á miðvikudaginn en Kai Havertz, Mikel Merino og Max Dowman eru einnig frá vegna meiðsla. Fyrirliðinn Ödegaard ætti að ná leiknum gegn Úlfunum.

„Fyrst voru það framherjarnir sem meiddust, svo varnarmennirnir og núna eru það miðjumennirnir. Við erum sem betur fer með breiðan hóp."
Athugasemdir
banner
banner
banner