Eyþór Martin Björgólfsson og félagar hans í Motherwell unnu 2-0 sigur á Kjartani Má Kjartanssyni og hans mönnum í Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni í dag.
Eyþór, sem gekk í raðir Motherwell undir lok gluggans, kom inn af bekknum á 66. mínútu leiksins en KJartan kom inn á 79. mínútu hjá Aberdeen.
Elijah Just skoraði fyrra mark Motherwell í fyrri hálfleiknum og seinna markið kom undir lok leiks en það var skráð sem sjálfsmark á Tom McIntyre.
Motherwell er í 4. sæti með 47 stig en Aberdeen í 8. sæti með 28 stig eftir 26 umferðir.
Nökkvi Þeyr Þórisson lagði upp mark Telstar í 1-1 jafnteflinu gegn Twente í hollensku úrvalsdeildinni.
Nökkvi byrjaði hjá Telstar á meðan Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Twente.
Á 17. mínútu leiksins lagði Nökkvi upp fyrir Sem van Duijn, en Marko Pjaca jafnaði fyrir gestina sjö mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
Jelani Seedorf, frændi hollensku goðsagnarinnar Clarence Seedorf, kom inn á fyrir Nökkva í síðari hálfleiknum. Kristian Nökkvi fór af velli á sama tíma hjá Twente.
Twente er í 7. sæti með 35 stig en Telstar í 17. sæti með 18 stig.
Elías Rafn Ólafsson stóð á milli stanganna hjá Midtjylland er liðið vann 4-1 útisigur á Odense. Brasilíumaðurinn Junior Brumado skoraði þrennu fyrir Midtjylland, en þetta var hans fyrsta þrenna í deildinni eftir að hafa áður skorað þrennu gegn Nordsjælland í bikarnum.
Martin Erlic, liðsfélagi Elíasar, og mikilvægur hlekkur í vörn Midtjylland sá rauða spjaldið á lokamínútum leiksins og missir hann því af næstu leikjum liðsins.
Midtjylland er í öðru sæti dönsku deildarinnar með 42 stig, tveimur stigum frá toppliði AGF.
Athugasemdir



