Arsenal átti ekki í vandræðum með Wigan í enska FA-bikarnum í dag og vann 4-0. Eberechi Eze, sem hefur átt erfiða mánuði, skilaði frábærum stoðsendingum í fyrstu tveimur mörkunum.
Eze hefur verið kaldur nokkuð lengi og var tekinn af velli í 1-1 jafnteflisleiknum gegn Brentford á dögunum.
Eze hefur verið kaldur nokkuð lengi og var tekinn af velli í 1-1 jafnteflisleiknum gegn Brentford á dögunum.
„Það er komið ansi langt frá þrennunni gegn Tottenham. Hann lék þrettán leiki án þess að skora eftir þann magnaða dag og Mikel Arteta sendi skýr skilaboð um að hann þyrfti meira frá leikmanninum sem kostaði 60 milljónir punda," skrifar James Sharpe, blaðamaður Daily Mail.
„Hann fékk meira, vissulega var þetta gegn C-deildarliði Wigan en Eze sýndi gæði sín og það sem mestu máli skiptir: Karakter frá manni sem er ákveðinn í að sanna sig. Hann fann taktinn aftur. Hann sýndi að hann getur svo sannarlega haft áhrif á lokakaflann."
Athugasemdir




