Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 12:12
Brynjar Ingi Erluson
Fabregas vonsvikinn með Morata - „Þeir sem þola það ekki þurfa að skipta um starfsgrein“
Mynd: EPA
Cesc Fabregas, þjálfari Como, var allt annað en sáttur með samlanda sinn og lærisvein, Alvaro Morata, eftir 2-1 tapið gegn Fiorentina í Seríu A á Ítalíu í gær.

Framherjinn reyndi kom inn af bekknum þegar hálftími var eftir, sótti gult spjald á 88. mínútu og var síðan rekinn af velli um það bil mínútu síðar fyrir að skalla Luca Ranieri, varnarmann Fiorentina.

Fabregas sagðist ekki vera ánægður að sjá svona frá leikmanni eins og Morata, og leggur til að þeirra sem geti ekki höndlað ögranir ættu að skipta um starfsgrein.

„Ögranir eru hluti af fótbolta. Þeir sem geta ekki þolað ögranir þurfa að skipta um starfsgrein.“

„Hann er reyndur leikmaður og ég býst við meiru frá honum því það er stutt á milli sigurs og taps.“

„Ég er enginn sérstakur aðdáandi afsakana. Við verðum að spila okkar leik og það ætti ekki að skipta neinu máli hvað aðrir segja um okkur,“
sagði Fabregas.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner