Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Mögnuð sigurganga Lyon heldur áfram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lyon tók á móti Nice í efstu deild franska boltans í dag og hafði betur eftir nokkuð jafnan slag.

Corentin Tolisso, fyrrum leikmaður FC Bayern, skoraði fyrsta mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks og tvöfaldaði danski kantmaðurinn Noah Nartey forystuna í síðari hálfleik.

Lokatölur urðu 2-0 og var þetta þrettándi sigur Lyon í röð í öllum keppnum. Liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 45 stig eftir 22 umferðir, sjö stigum á eftir toppliði Lens.

Auxerre, Lorient og Le Havre unnu einnig leiki sína í dag. Le Havre er núna níu stigum frá fallsvæðinu á meðan Lorient er aðeins þremur stigum frá evrópusæti.

Auxerre situr aftur á móti í fallsæti, með 17 stig eftir 22 umferðir. Liðið er þó í efsta fallsætinu sem veitir umspilsleiki gegn liðinu sem endar í þriðja sæti næstefstu deildar - líkt og tíðkast í þýska boltanum.

Lyon 2 - 0 Nice
1-0 Corentin Tolisso ('45+1)
2-0 Noah Nartey ('64)

Metz 1 - 3 Auxerre

Lorient 2 - 0 Angers

Le Havre 2 - 1 Toulouse


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner