Skemmtilegri helgi í Lengjubikarnum lýkur með fjörugum leikjum í dag og í kvöld.
Leikið verður í karlaflokki þar sem KA og Víkingur R. eigast við í stórleik dagsins. Leikið verður í Boganum en heimamenn í KA eru án stiga eftir tvo tapleiki á meðan Íslandsmeistarar Víkings eiga fjögur stig.
Dalvík/Reynir tekur á móti Magna í eina leik kvöldsins í B-deildinni og eigast liðin við í fyrstu umferð þar.
Álafoss og Kría eiga að lokum heimaleiki í C-deildinni, gegn Uppsveitum og Höfnum.
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 3
16:30 KA-Víkingur R. (Boginn)
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 4
19:00 Dalvík/Reynir - Magni
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 1
16:00 Álafoss-Uppsveitir (Malbikstöðin að Varmá)
17:30 Kría-Hafnir (Vivaldivöllurinn)
Athugasemdir



