Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   sun 15. febrúar 2026 16:12
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Sneru við taflinu á útivelli - Markalaust hjá Mikael
Mikael Egill spilaði í markalausu jafntefli gegn Cremonese
Mikael Egill spilaði í markalausu jafntefli gegn Cremonese
Mynd: EPA
Pellegrino skoraði sigurmark Parma í uppbótartíma
Pellegrino skoraði sigurmark Parma í uppbótartíma
Mynd: EPA
Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn í markalausu jafntefli Genoa gegn Cremonese í Seríu A á Ítalíu í dag.

Mikael Egill er fastamaður hjá Genoa sem var meira með boltann í leiknum.

Bæði lið fengu færi til þess að skora og þá sérstaklega heimamenn sem voru að skapa sér betri sénsa.

Það var í raun ótrúlegt að leiknum hafi lokið með markalausu jafntefli miðað við færin, en það reyndist niðurstaðan.

Genoa er án sigurs í síðustu þremur deildarleikjum og situr nú í 16. sæti með 24 stig eins og Cremonese sem er í sætinu fyrir ofan með betri markatölu.

Sassuolo átti frábæra endurkomu í 2-1 sigrinum á Udinese. Oumar Solet kom Udinese í 1-0 á 10. mínútu og voru það heimamenn sem fóru með forystu inn í hálfleik.

Snemma í þeim síðari skoruðu gestirnir tvö mörk á tveimur mínútum. Armand Lauriente og Andrea Pinamonti gerðu mörkin og komu Sassuolo upp í 9. sæti deildarinnar með 32 stig.

Parma vann dramatískan 2-1 sigur á Hellas Verona. Adrian Bernabe skoraði fyrir Parma á 4. mínútu og aðeins sjö mínútum síðar var Gift Orban, leikmaður Verona, rekinn af velli með beint rautt spjald.

Parma var með yfirhöndina en undir lok fyrri hálfleiks braut Alessandro Circati klaufalega af sér í teignum og vítaspyrna dæmd. Abdou Harroui skoraði úr spyrnunni.

Gabriel Strefezza fékk tvö frábær færi til að tryggja Parma sigurinn. Fyrst setti hann frákast yfir markið og í seinna færinu þrumaði hann boltanum í þverslá.

Það var ekki tímapursmál hvort heldur hvenær sigurmarkið kæmi, en það kom á annarri mínútu í uppbótartíma. Það gerði Argentínumaðurinn Mateo Pellegrino með skalla eftir fyrirgjöf Hans Nicolussi Caviglia.

Góður og mikilvægur sigur Parma sem er í 12. sæti með 29 stig en Verona í neðsta sæti deildarinnar með 15 stig.

Cremonese 0 - 0 Genoa

Parma 2 - 1 Verona
1-0 Adrian Bernabe ('4 )
1-1 Abdou Harroui ('43 , víti)
2-1 Mateo Pellegrino ('90 )
Rautt spjald: Gift Orban, Verona ('11)

Udinese 1 - 2 Sassuolo
1-0 Oumar Solet ('10 )
1-1 Armand Lauriente ('56 )
1-2 Andrea Pinamonti ('58 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 27 22 1 4 64 21 +43 67
2 Milan 27 16 9 2 43 20 +23 57
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 27 16 3 8 37 19 +18 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 27 11 6 10 36 32 +4 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 27 8 9 10 20 32 -12 33
13 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
14 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
15 Genoa 27 6 9 12 32 39 -7 27
16 Fiorentina 27 5 9 13 30 42 -12 24
17 Cremonese 27 5 9 13 21 38 -17 24
18 Lecce 27 6 6 15 18 36 -18 24
19 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
20 Verona 27 2 9 16 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner