Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 21:41
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Tvenna frá Malen dugði ekki - Vlasic skoraði í bæði mörkin
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ítalíumeistarar Napoli tóku á móti Roma í ítölsku toppbaráttunni og skoraði Hollendingurinn knái Donyell Malen fyrsta mark leiksins.

Bryan Zaragoza slapp innfyrir vörn Napoli eftir að heimamenn misstu einbeitinguna í örlitla stund til að kvarta undan frábærri tæklingu Evan Ndicka til að vinna boltann á hinum enda vallarins. Spánverjinn knái gaf boltann fyrir á Malen sem gerði vel að klára af stuttu færi.

Það var lítið að frétta í hágæða leik en vængbakvörðurinn þaulreyndi Leonardo Spinazzola jafnaði metin með frábæru skoti af tæplega 25 metra færi skömmu fyrir leikhlé.

Síðari hálfleikurinn bauð áfram upp á lítið af færum en Rómverjar endurheimtu forystuna á 71. mínútu þegar bakvörðurinn Wesley Franca slapp í gegn. Amir Rrahmani spretti á eftir honum en fæturnir þeirra flæktust saman svo Albaninn endaði á að brjóta afar klaufalega af sér. Malen steig á punktinn og skoraði.

Heimamenn voru þó alls ekki á því að gefast upp og náðu að jafna stöðuna á nýjan leik eftir að hafa unnið boltann hátt uppi á 82. mínútu. Boltinn barst til Alisson Santos, sem er nýkominn til Napoli úr röðum Sporting CP, og kláraði hann með góðu marki.

Leikurinn var orðinn mjög opinn og skemmtilegur á lokakaflanum en hvorugu liði tókst að skapa sér góð færi. Liðin skiptust á að sækja endanna á milli en ekki vildi boltinn í netið, svo lokatölur urðu 2-2.

Napoli er í þriðja sæti með 50 stig eftir 25 umferðir, þremur stigum fyrir ofan Roma.

Fyrr í dag áttust Torino og Bologna við í og voru gestirnir frá Bologna sterkari aðilinn en staðan hélst markalaus í fyrri hálfleik.

Nikola Vlasic, fyrrum leikmaður Everton og West Ham, skoraði afar óheppilegt sjálfsmark í upphafi síðari hálfleiks en bætti svo upp fyrir það með jöfnunarmarki þegar hann fylgdi marktilraun Duván Zapata eftir.

Það var þó meira eftir á tanknum hjá gestaliði Bologna og náði Santiago Castro að gera sigurmark úr erfiðu færi á 70. mínútu. Frábær afgreiðsla hjá Castro og urðu lokatölur 1-2 fyrir Bologna.

Bologna er um miðja deild með 33 stig eftir 25 umferðir, sex stigum fyrir ofan Torino.

Napoli 2 - 2 Roma
0-1 Donyell Malen ('7 )
1-1 Leonardo Spinazzola ('40 )
1-2 Donyell Malen ('71 , víti)
2-2 Alisson Santos ('82 )

Torino 1 - 2 Bologna
0-1 Nikola Vlasic ('49 , sjálfsmark)
1-1 Nikola Vlasic ('62 )
1-2 Santiago Castro ('70 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner