Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Dalvík/Reynir lagði Magna - Þrjú rauð
Mynd: Raggi Óla
Dalvík/Reynir 1 - 0 Magni
1-0 Rúnar Helgi Björnsson ('43)

Rúnar Helgi Björnsson skoraði eina mark leiksins er Dalvík/Reynir lagði Magna að velli í eina leik dagsins í B-deild Lengjubikarsins.

Rúnar Helgi skoraði undir lok fyrri hálfleiks og fékk Aron Elí Kristjánsson að líta beint rautt spjald í liði Grenvíkinga í síðari hálfleik.

Tíu Grenvíkingar börðust en hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn. Það dró þó til tíðinda á lokamínútunum þegar tveir leikmenn Magna fengu seinna gula spjaldið sitt og voru reknir af velli.

Magni kláraði leikinn því þremur leikmönnum færri, með 8 gegn 11, en lokatölur urðu 1-0.

Dalvík/Reynir og Magni munu leika saman í 2. deildinni komandi sumar eftir að Magni komst upp um deild í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner