Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   sun 15. febrúar 2026 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Rúben Amorim var óvart orðinn liðsfélagi Mikaels
Mynd: reddit
Genoa heimsótti Cremonese í efstu deild ítalska boltans í dag og lauk leiknum með markalausu jafntefli þrátt fyrir góð færi á báða bóga.

Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Genoa og byrjaði hinn brasilíski Alex Amorim, sem var fenginn til Genoa í janúarglugganum, á bekknum.

Á lokamínútum leiksins fékk Amorim að spreyta sig og þá birtist mynd af honum í Genoa treyju á skjáum áhorfenda heima í stofu, nema að það var rangur Amorim á myndinni.

Í stað þess að sýna Alex Amorim var hinn portúgalski Ruben Amorim, fyrrum þjálfari Sporting CP og Manchester United, kominn í Genoa treyju.

Mikael er að reynast mikilvægur hlekkur á miðjunni hjá Genoa og lék hann allan leikinn í dag. Liðið er með 24 stig eftir 25 umferðir, þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 27 22 1 4 64 21 +43 67
2 Milan 27 16 9 2 43 20 +23 57
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 27 16 3 8 37 19 +18 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 27 11 6 10 36 32 +4 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 27 8 9 10 20 32 -12 33
13 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
14 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
15 Genoa 27 6 9 12 32 39 -7 27
16 Fiorentina 27 5 9 13 30 42 -12 24
17 Cremonese 27 5 9 13 21 38 -17 24
18 Lecce 27 6 6 15 18 36 -18 24
19 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
20 Verona 27 2 9 16 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner