Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   sun 15. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Fiskaði Kalulu útaf
Mynd: EPA
Inter hafði betur gegn Juventus í risaslag í ítölsku deildinni í gærkvöldi.

Staðan var jöfn, 1-1, þegar Pierre Kalulu fékk að líta seinna gula spjaldið sitt fyrir að stöðva skyndisókn Inter.

Við nánari athugun kemur í ljós að Alessandro Bastoni varnarmaður Inter dýfði sér í jörðina til að fiska Kalulu af velli.

Kalulu trúði ekki sínum eigin augum þegar hann sá dómarann lyfta rauða spjaldinu og gerði augljóst merki um að þetta atvik ætti að skoða í VAR-herberginu, en reglurnar banna það. Í ítalska boltanum má VAR-teymið ekki skerast í leikinn þegar um seinna gult spjald er að ræða, einungis ef það er beint rautt.

Tíu leikmenn Juventus börðust hetjulega í seinni hálfleik en topplið Inter náði að gera sigurmark á 90. mínútu, svo lokatölur urðu 3-2.


Inter 1 - 1 Juventus - Kalulu 2nd Yellow Card 42'
by
u/eanwen0 in
soccer


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner