Brasilíski kantmaðurinn Hulk er fyrir löngu orðinn heimsfrægur fyrir mögnuð aukaspyrnumörk sem hann hefur gert í gegnum tíðina.
Hann er orðinn 39 ára gamall en er hvergi nærri hættur að skora úr aukaspyrnum. Hann leikur í dag með stórveldinu Atlético Mineiro í heimalandinu þar sem hann hefur komið að 194 mörkum í 295 leikjum á síðustu fimm árum.
Hulk var á sínum stað í byrjunarliði Atlético þegar liðið spilaði við Itabirito í gærkvöldi og skoraði hann þrennu í stórsigri. Eitt markanna kom beint úr aukaspyrnu af um það bil 35 metra færi.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan en Hulk er kominn með fimm mörk og eina stoðsendingu í átta leikjum á þessu ári.
HULKKKKK ????
— Goals Xtra (@GoalsXtra) February 14, 2026
???????? HULK AGAIN FROM A VERY, VERY LONG RANGE...pic.twitter.com/RviagI8vSQ
Posts from the soccer
community on Reddit
Athugasemdir



