Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   sun 15. febrúar 2026 16:31
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Baráttusigur hjá Augsburg gegn botnliðinu
Alexis Claude-Maurice skoraði sigurmarkið fyrir Augsburg
Alexis Claude-Maurice skoraði sigurmarkið fyrir Augsburg
Mynd: EPA
Augsburg 1 - 0 Heidenheim
1-0 Alexis Claude-Maurice ('79 , víti)

Augsburg vann dýrmætan 1-0 sigur á Heidenheim í þýsku deildinni í dag.

Heidenheim var mjög líflegt í byrjun leiks og skapaði sér nokkur góð færi. Heimamenn áttu líka sín færi en markvörðurinn Diant Ramaj var að eiga góðan dag í markinu.

Í seinni hálfleik voru gestirnir mun líklegri til að skora. Jan Schöpper átti fínt skot sem markvörður Augsburg varði og þá átti Eran Dinkci skot rétt framhjá.

Það var því gegn gangi leiksins er heimamenn fengu vítaspyrnu er varnarmaðurinn Benedikt Gimber var dæmdur brotlegur fyrir að hafa rifið Keven Schlotterbeck niður í teignum. Umdeildur dómur en hann stóð.

Alexis Claude-Maurice skoraði úr vítaspyrnunni og tryggði Augsburg stigin þrjú. Þriðja deildarmark hans á tímabilinu.

Augsburg er í 11. sæti með 25 stig en Heidenheim á botninum með 13 stig og án sigurs síðan í byrjun desember.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 24 15 7 2 51 25 +26 52
3 Hoffenheim 24 14 4 6 49 31 +18 46
4 Stuttgart 24 14 4 6 48 32 +16 46
5 RB Leipzig 24 13 5 6 46 33 +13 44
6 Leverkusen 24 13 4 7 45 29 +16 43
7 Frankfurt 24 9 7 8 48 49 -1 34
8 Freiburg 24 9 6 9 34 39 -5 33
9 Augsburg 24 9 4 11 30 41 -11 31
10 Union Berlin 24 7 7 10 29 38 -9 28
11 Hamburger 24 6 8 10 26 35 -9 26
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Köln 24 6 6 12 33 41 -8 24
14 Mainz 24 5 8 11 27 39 -12 23
15 St. Pauli 24 6 5 13 23 40 -17 23
16 Werder 24 5 7 12 25 44 -19 22
17 Wolfsburg 24 5 5 14 33 53 -20 20
18 Heidenheim 24 3 5 16 22 53 -31 14
Athugasemdir
banner
banner