RB Leipzig 2 - 2 Wolfsburg
0-1 Mohamed Amoura ('52 )
1-1 Yan Diomande ('70 )
1-2 Mattias Svanberg ('78 )
2-2 Brajan Gruda ('89)
0-1 Mohamed Amoura ('52 )
1-1 Yan Diomande ('70 )
1-2 Mattias Svanberg ('78 )
2-2 Brajan Gruda ('89)
RB Leipzig tók á móti Wolfsburg í seinni leik dagsins í efstu deild þýska boltans og var staðan markalaus í leikhlé þrátt fyrir mikla yfirburði heimamanna.
Leipzig óð í færum en tókst ekki að koma boltanum í netið, á meðan gestirnir frá Wolfsburg sköpuðu sér lítið sem ekkert.
Síðari hálfleikurinn var talsvert jafnari og nýttu bæði lið færin sín vel. Mohamed Amoura gerði fyrsta markið í upphafi síðari hálfleiks með frábæru skoti eftir magnaðan undirbúning frá danska ungstirninu Adam Daghim.
Táningurinn eftirsótti Yan Diomande jafnaði metin eftir ótrúleg mistök Kamil Grabara á milli stanga gestaliðsins en átta mínútum síðar tók Wolfsburg forystuna á ný.
Mattias Svanberg slapp þá í gegn eftir grátlega lélegan varnarleik hjá Leipzig og skoraði úr góðu færi til að endurheimta forystuna.
Heimamenn gáfust þó ekki upp og var það miðjumaðurinn Brajan Gruda, lánsmaður frá Brighton, sem jafnaði metin á 89. mínútu til að bjarga stigi. Lokatölur 2-2.
Leipzig er í fimmta sæti Bundesliga með 40 stig eftir 22 umferðir, aðeins tveimur stigum frá meistaradeildarsæti.
Wolfsburg er einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.
Athugasemdir



