Federico Valverde, varafyrirliði Real Madrid sem hefur verið mikið með bandið á tímabilinu í fjarveru Dani Carvajal, tjáði sig eftir 4-1 sigur gegn Real Sociedad í gærkvöldi.
Valverde skoraði eitt markanna í sigrinum og hefur verið einn af betri leikmönnum Real á leiktíðinni.
„Þetta er búið að vera erfitt tímabil sem fyrirliði, ég finn fyrir ábyrgð þegar hlutirnir ganga illa," sagði Valverde að leikslokum.
„Það hafa verið tímapunktar á tímabilinu þar sem við þurftum að kyngja mikið af skít sem kom úr öllum áttum. Við höfum farið í gegnum erfiðar stundir og það er búið að þroska okkur sem leikmenn.
„Búningsklefinn hefur alltaf verið samheldinn í gegnum allt þetta ferli."
Valverde var spurður út í nýja þjálfarann Arbeloa sem tók við af Xabi Alonso í janúar
„Arbeloa biður okkur um mikla hreyfingu og okkur líður vel að spila undir hans leiðsögn."
15.02.2026 18:57
Mjög ánægður með Vini og Trent: Mbappé tilbúinn
Athugasemdir




