Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   mán 16. febrúar 2026 10:27
Elvar Geir Magnússon
Æfa í öðru landi svo Sterling geti verið með
Sterling var í stúkunni þegar Feyenoord vann um helgina.
Sterling var í stúkunni þegar Feyenoord vann um helgina.
Mynd: EPA
Hollenska félagið Feyenoord setti upp æfingabúðir í Belgíu svo enski sóknarleikmaðurinn Raheem Sterling, sem gekk nýlega í raðir félagsins, gæti æft með liðsfélögum sínum.

Einhver vandræði með skiptin gerðu að verkum að beðið er eftir atvinnuleyfi fyrir Sterling en samkvæmt reglum má hann ekki einu sinni æfa með liðinu meðan beðið er eftir leyfinu.

Þær reglur gilda þó ekki í öllum löndum og með því að fara yfir landamærin inn í Belgíu þá getur hann æft með liðsfélögunum.

„Við vildum hafa hann með á æfingunum og ég vildi líka vinna að þróun liðsins. Það er hentugt fyrir liðið að hrista sig saman með því að fara aðeins í nýtt umhverfi og ræða málin," segir Robin van Persie, stjóri Feyenoord.

Sterling verður kominn með atvinnuleyfi til að æfa með Feyenoord á morgun en hann var í stúkunni um helgina þegar liðið vann Go Ahead Eagles 1-0. Feyenoord er í öðru sæti í hollensku deildinni en PSV Eindhoven er á toppnum með fjórtán stiga forystu.
Stöðutaflan Holland Holland efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 PSV 25 21 2 2 73 30 +43 65
2 Feyenoord 25 15 3 7 55 35 +20 48
3 Ajax 25 11 11 3 47 31 +16 44
4 NEC 25 12 7 6 61 43 +18 43
5 Twente 25 10 11 4 41 26 +15 41
6 AZ 25 11 6 8 42 40 +2 39
7 Sparta Rotterdam 25 11 4 10 32 42 -10 37
8 Utrecht 26 9 8 9 38 31 +7 35
9 Heerenveen 25 9 7 9 42 43 -1 34
10 Fortuna Sittard 25 9 5 11 39 45 -6 32
11 Groningen 25 9 4 12 33 35 -2 31
12 Go Ahead Eagles 25 6 11 8 38 39 -1 29
13 Zwolle 25 7 7 11 34 50 -16 28
14 Volendam 25 7 6 12 29 41 -12 27
15 Excelsior 25 7 5 13 26 42 -16 26
16 NAC 25 5 7 13 25 39 -14 22
17 Telstar 25 4 9 12 31 41 -10 21
18 Heracles Almelo 26 5 3 18 32 65 -33 18
Athugasemdir
banner
banner
banner