Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 19:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hákon Rafn í byrjunarliði Brentford í enska bikarnum
Mynd: Brentford
Hákon Rafn Valdimarsson er í byrjunarliði Brentford sem heimsækir Macclesfield í enska bikarnum í kvöld.

Hákon hefur fengið tækifæri í bikarkeppnunum en Caoimhin Kelleher hefur eignað sér byrjunarliðssætið í deildinni.

Það eru aðeins fjórir leikmenn sem halda byrjunarliðssætinu eftir frábært 1-1 jafntefli gegn Arsenal í síðustu umferð. Michael Kayode, Vitaly Janelt, Yehor Yarmoliuk og Mathias Jensen.

Macclesfield spilar í utandeildinni en liðið sló ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace úr leik í síðustu umferð.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30

Byrjunarlið Brentford gegn Macclesfield: Valdimarsson, Hickey, Collins, Pinnock, Kayode, Janelt, Yarmoliuk, Donovan, Jensen, Nelson, Furo.


Athugasemdir
banner
banner
banner