Ívar Örn Árnason hefur nú formlega gengið í raðir Breiðabliks frá KA. Ívar var fyrirliði liðsins á síðasta tímabili og er ljóst að það er mikil blóðtaka fyrir KA að missa Ívar.
„Þeir þurfa miðvörð og það er ekkert grín að fylla í skarð Ívars. Það er ekki mikið úrval af miðvörðum í íslenska boltanum,“ sagði Elvar Geir Magnússon meðal annars í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðastliðinn laugardag.
„Það er enginn leikmaður á Íslandi sem leysir Ívar Örn Árnason af fyrir KA. Nú þarf KA að fara ákveða sig, á að taka næsta unga strák inn og reyna blóðga fleiri Norðanmenn?“ Sagði Tómas Þór jafnframt í útvarpsþættinum.

KA hefur misst marga lykilmenn frá síðasta ári, en félagið hefur sótt Diego Montiel, Jeppe Pedersen og Jakob Héðin í vetur.
Albert Brynjar Ingason sagði í hlaðvarpinu Dr.Football í gær hafa miklar áhyggjur af Norðanmönnum og telur þá þurfa styrkingar í nær allar stöður á vellinum.
„Þeim vantar markvörð, hafsent, bakvörð, miðjumann og framherja. Þeim vantar eiginlega allt. Ég hef mjög miklar áhyggjur af KA-liðinu. Þetta er sama mynstur og maður hefur séð síðustu tvö tímabil. Í fyrra unnu þeir einn leik í fyrstu sjö umferðunum og einn leik í fyrstu tíu þar áður.
Þeir fá menn seint inn og þá fer liðið að tikka. Þeir fengu Marcel Römer og Birni Snæ seint inn á síðasta tímabili. Mér fannst glugginn byrja ágætlega núna en ef maður horfir á mennina sem eru farnir þá eru þetta rosalega margir lykilmenn. Það er búið að pikka stóra pósta af þeim ár eftir ár en lítið sem hefur komið í staðinn,“ sagði Albert.
KA
Komnir:
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Hákon Atli Aðalsteinsson frá Dalvík/Reyni (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Farnir:
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson
Andri Fannar Stefánsson
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Svíþjóðar
Ívar Örn Árnason til Breiðabliks
Athugasemdir