Það var nóg að frétta í Lengjubikarnum um helgina og eru fleiri leikir á dagskrá í kvöld, bæði í karla- og kvennaflokki.
Stærsti leikurinn er í A-deild kvenna þegar Stjarnan tekur á móti FH í nágrannaslag í Miðgarði.
Þá eru fimm leikir á dagskrá í C-deild karla þar sem Álftanes, ÍH og SR eiga heimaleiki í riðli 2 á meðan BF 108 og KFR spila heimaleiki í riðli 3.
Lengjubikar kvenna - A-deild, riðill 1
19:00 Stjarnan - FH (Miðgarður)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 2
20:00 Álftanes - Léttir (HTH völlurinn)
20:00 ÍH - Skallagrímur (Skessan)
20:00 SR - RB (Þróttheimar)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 3
19:30 BF 108 - Stokkseyri (Víkingsvöllur)
20:00 KFR - KM (JÁVERK-völlurinn)
Athugasemdir


