Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 20:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kærkominn sigur hjá Andra Fannari og liðið komst upp úr fallsæti
Mynd: Kasimpasa
Andri Fannar Baldursson spilaði allan leikinn þegar Kasimpasa vann kærkominn sigur í tyrknesku deildinni í kvöld. Liðið hafði spilað átta deildarleiki í röð án þess að vinna.

Kasimpasa náði 3-0 forystu gegn botnliði Karagumruk sem beit frá sér undir lokin og lokatölur urðu 3-2. Kasimpasa komst upp úr fallsæti með þessum sigri en liðið er í 15. sæti með 19 stig eftir 22 umferðir.

Daníel Leó Grétarsson spilaði 78 mínútur þegar Sonderjyske vann 2-1 endurkomusigur gegn Silkeborg í dönsku deildinni. Sonderjyske er í 4. sæti með 32 stig eftir 20 umferðir.

Oliver Stefánsson var ekki í leikmannahópi Tychy þriðja leikinn í röð þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Odra Opole í næst efstu deild í Póllandi. Tychy er í 16. sæti með 14 stig eftir 21 umferð, liðið er fjórum stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner