Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 16. febrúar 2026 21:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Linda Líf þreytti frumraun sína fyrir Kristianstad
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linda Líf Boama gekk til liðs við Kristianstad í Svíþjóð frá Víkingi fyrir áramót en hún spilaði sinn fyrsta keppnisleik í kvöld.

Kristiantad heimsótti Umea í fyrstu umferð bikarsins en það er riðlakeppni. Leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Linda spilaði allan leikinn en Elísa Lana Sigurjónsdóttir spilaði klukkutíma. Alexandra Jóhannsdóttir var ekki í leikmannahópnum eins og Guðný Árnadóttir sem er ólétt.

Næsti leikur Kristianstad er gegn Pitea sem vann Malmö 3-2 í gær.
Athugasemdir
banner