Úkraínski landsliðsmaðurinn Oleksandr Zinchenko, fyrrum leikmaður Arsenal, meiddist illa á hné eftir aðeins þriggja mínútna leik í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með Ajax í Hollandi.
Zinchenko gekk í raðir Ajax frá Arsenal í lok janúargluggans eftir að hafa verið hjá Nottingham Forest á láni.
Zinchenko gekk í raðir Ajax frá Arsenal í lok janúargluggans eftir að hafa verið hjá Nottingham Forest á láni.
Þessi 29 ára leikmaður lá kvalinn á vellinum eftir slæm meiðsli sem hann hlaut eftir baráttu við Dimitrios Limnios, leikmann Fortuna Sittard, sem virtist ansi sakleysisleg.
Ajax hefur nú staðfest að tímabilinu sé lokið hjá Zinchenko sem þarf að fara í aðgerð. Ef Úkraína kemst á HM í sumar verður hann ekki með þar. Úkraína mætir Svíþjóð í undanúrslitum umspilsins og svo sigurvegaranum úr leik Póllands og Albaníu ef sigur vinnst gegn Svíum.
Fréttin hefur verið uppfærð
After just a few minutes into his first start for Ajax, Oleksandr Zinchenko was forced off the pitch with what seems to be a serious injury.
— EuroFoot (@eurofootcom) February 15, 2026
"I'm definitely worried about him.", said Ajax coach Fred Grim. ???????? pic.twitter.com/VOLRI4YoUo
Athugasemdir




