Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 16:29
Elvar Geir Magnússon
Óvíst hvort Bellingham verði með í landsleikjunum
Mynd: EPA
Jude Bellingham er tæpur fyrir vináttulandsleiki Englands í mars en meiðsli hans aftan í læri eru verri en fyrst var talið.

Þessi 22 ára miðjumaður Real Madrid meiddist í leik gegn Rayo Vallecano fyrr í þessum mánuði og talað um að hann myndi missa af um fjórum vikum.

Nú er talað um að tímaramminn verði aðeins lengri, sex til átta vikur.

Óvíst er hvort Bellingham geti verið með enska landsliðinu í vináttulandsleikjum gegn Úrúgvæ og Japan í lok mars. Hann er í kapphlaupi við tímann en leikirnir eru hluti af undirbúningi fyrir HM.

„Hann mun reyna allt til að vera með okkur í mars. Þetta er smá kapphlaup við tímann," segir Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.

Bellingham missir af mikilvægum leikjum með Real Madrid, þar á meðal umspilseinvíginu gegn Benfica í Meistaradeildinni en fyrri leikurinn verður á morgun.
Athugasemdir
banner
banner