Brasilíski kantmaðurinn Raphinha er búinn að jafna sig eftir smávægileg meiðsli sem hann varð fyrir í lok janúar.
Raphinha er lykilmaður í liði Barcelona og þarf liðið sárlega á honum að halda í spænsku titilbaráttunni og bikarnum.
Börsungar eru sem stendur í öðru sæti í titilbaráttunni en geta endurheimt toppsætið með sigri gegn Girona í kvöld. Lærlingar Hansi Flick eru hins vegar í vandræðum í bikarnum eftir 4-0 tap í fyrri leik undanúrslitanna gegn Atlético Madrid.
Flick hefur trú á endurkomu sinna manna í seinni leiknum sem fer fram í byrjun mars. Raphinha gæti því ráðið úrslitum í því sem væri nokkuð ólíklegur endurkomusigur.
Flick staðfesti á fréttamannafundi í gær að Raphinha verður með í hópnum gegn Girona í kvöld.
Athugasemdir



