Palermo er í toppbaráttu í Serie B deildinni á Ítalíu og er taplaust í síðustu þrettán leikjum í röð.
Fyrir mánuði síðan kíkti Spezia í heimsókn og unnu heimamenn 1-0 sigur í Palermo. Eina mark leiksins leit dagsins ljós eftir aðeins tíu sekúndna leik, eftir skemmtilega útfærða miðju.
Leikmenn Palermo fjölmenntu á hægri vænginn beint eftir miðju og unnu fyrsta skallaboltann eftir langa sendingu upp völlinn. Boltinn datt fyrir finnska sóknarmanninn Joel Pohjanpalo, sem gaf snyrtilega hælsendingu á Jacopo Segre sem þrumaði boltanum viðstöðulaust í netið.
Þetta er eitt af sneggstu mörkum sögunnar, en Rafael Leao á metið í Serie A frá því 2020 þegar hann skoraði eftir rétt rúmar 6 sekúndur gegn Sassuolo.
Posts from the soccer
community on Reddit
Athugasemdir



