Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 16. febrúar 2026 14:30
Elvar Geir Magnússon
Skiptar skoðanir á því hvort Carrick ætti að fá starfið ef hann landar Meistaradeildarsæti
Michael Carrick.
Michael Carrick.
Mynd: EPA
Gengi Manchester United hefur orðið mun betra síðan Michael Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri en liðið hefur unnið fjóra leiki og gert eitt jafntefli í þeim fimm leikjum sem hann hefur stýrt.

Ef Manchester United nær markmiði sínu um sæti í Meistaradeildinni, ætti Carrick þá að fá starfið til frambúðar? Íþróttafréttamenn dagblaðsins Mirror veltu þessu fyrir sér.

Fjórir af þeim sex sem settu fram sína skoðun telja að Carrick eigi að fá starfið áfram ef hann landar Meitaradeildarsæti. Tveir eru á öndverðri skoðun.

„Hann hefur sannað sig sem leiðtogi. Leikmenn virða hann og þykir gott að spila fyrir hann. Hann setur menn í réttar stöðu og einfaldar hlutina," segir Felix Keith.

„Vegna mistaka þeirra sem komu á undan honum er enska úrvalsdeildin eina sem þeir einbeita sér að og ég býst við að þeir komist í Meistaradeildina. Carrick hefur gert vel og stjórnendur United þurfa ekki að breyta."

Daniel Orme segir hinsvegar að United þurfi að muna eftir því sem gerðist með Ole Gunnar Solskjær.

„Sá norski gerði auðvitað fína hluti en það er ekki það sem Rauðu djöflarnir þurfa núna. Þeir vilja komast alla leið á toppinn í enska boltanum. Tel ég að Carrick sé rétti maðurinn til að gera það? Nei, það geri ég ekki," segir Orne.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner