Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 15:16
Snæbjört Pálsdóttir
„Við þurfum að spila okkar besta varnarleik í mjög langan tíma"
Kvenaboltinn
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Mynd: EPA
Birta átti gott tímabil í fyrra, fór til Genoa í vetur og er mætt í landsliðið í fyrsta sinn.
Birta átti gott tímabil í fyrra, fór til Genoa í vetur og er mætt í landsliðið í fyrsta sinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framundan eru leikir gegn Evrópumeisturum Englands og heimsmeisturum Spánar.
Framundan eru leikir gegn Evrópumeisturum Englands og heimsmeisturum Spánar.
Mynd: EPA

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hóp Íslands fyrir komandi útileiki gegn Spáni og Englandi í undankeppni HM. 

Þorsteinn fór yfir valið á blaðamannafundi þar sem hann ræddi meðal annars stöðu leikmanna, væntingar til verkefnisins og þær áskoranir sem bíða liðsins gegn tveimur af sterkustu landsliðum heims. 


Staðan á hópnum og meiðsli

Þorsteinn hóf fundinn á að fara yfir þær breytingar sem orðið hafa á hópnum frá síðasta leik þegar Ísland vann Norður-Írland í Þjóðadeildarumspilinu í lok október. Arna Eiríksdóttir, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Amanda Andradóttir eru meiddar og þá gaf Agla María Albertsdóttir ekki kost á sér vegna vinnuástæðna. Amanda er meidd á hné og verður frá í um þrjá mánuði. 

Steini nefndi að lykilleikmenn hafa verið að standa sig vel með sínum liðum. Þrátt fyrir að margir leikmenn hafi verið að skipta um lið þá er staðan góð á leikmönnum. 

Nefndi hann sérstaklega, Karólínu Leu, sem skoraði um helgina. Guðrúnu Arnardóttur, sem er komin í gott lið og að standa sig vel. Þær Emilía Kiær Ásgeirsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir sem hafa spilað vel og Sandra María hefur skorað mikið í vetur.

„Það er alveg fullt af leikmönnum sem eru að gera fína hluti.“

Steini útskýrði val á Birtu og Elínu

„Þær hafa verið svona næsti kostur í stöðunni. Birta bara stóð sig vel í síðasta sumar og fram eftir hausti og var að skora mörk á Ítalíu núna í síðasta og næstsíðasta leik. Mér finnst bara eðlilegt að taka hana inn.“

Um endurkomu Ídu Marínar

„Ída Marín spilar í háskóla í Bandaríkjunum og var að spila fram í lok nóvember í úrslitakeppninni þar, þannig að hún er ekki búin að vera lengi frá. Hún lítur vel út, spilar með FH hér heima og ég sá fullt af leikjum með henni í Bandaríkjunum. Hún er búin að vera á góðu róli og lítur vel út.“

Áskoranirnar framundan

Steini dróg ekkert undan þegar hann lýsti gæðum andstæðinganna og mikilvægi þess að mæta þeim af raunsæi:

„Við vitum alveg að við erum að fara að spila á móti tveimur af þremur bestu kannski, getum við sagt, í heiminum. Og auðvitað vitum við það alveg að þetta verður erfitt, þetta verður ólíkur leikur heldur en við vorum að spila hérna síðast í október.“

„Það er alveg sama hvaða þjóð spilar á móti Spáni, það er engin þjóð sem mætir í leik á móti Spáni og segist ætla að vera með boltann meira en Spánn. Það er alveg sama hvaða landsliðsþjálfari kemur í pontu, hann talar alltaf um: við hugsum ekki um þessar tölfræðitölur vegna þess að við ætlum ekki að rembast á þeim nótum. Við ætlum að finna leiðir hvernig við ætlum að fara að því að skora á móti þeim og hvernig við ætlum að verjast á móti þeim.“

Þrátt fyrir styrkleika andstæðinganna segir hann að liðið verði að „trúa á okkur sjálf“. Hann benti á að þessi lið hafi áður tapað stigum gegn liðum sem eru neðar á styrkleikalistanum en þau.

Þar sem búast má við að Spánn og England stjórni leikjunum mikið, leggur hann áherslu á að Ísland verði að „grípa þau færi sem við fáum“.

„Við þurfum að þora að vera með boltann, við þurfum að reyna að stjórna leiknum eins vel og við getum... taka tíma í hluti, halda í boltann þegar við höfum möguleika á því og svo finna leiðir til að skora mörk.“

„Við þurfum að spila okkar besta varnarleik í mjög langan tíma til þess að fá eitthvað gott út úr þessum leikjum, það er alveg klárt.“


Athugasemdir
banner