Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 16. maí 2023 16:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Macario semur við Chelsea - Sló í gegn á móti Íslandi
Catarina Macario.
Catarina Macario.
Mynd: Getty Images
Chelsea er að ganga frá samningi við bandarísku landsliðskonu Catarina Macario en það er The Athletic sem greinir frá því.

Macario er 23 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem er á mála hjá Lyon í Frakklandi. Samningur hennar þar rennur út í sumar og þá fer hún til Chelsea.

Macario var mögnuð í háskólaboltanum í Bandaríkjunum áður en hún fer til Lyon þar sem hún lék með Stanford Cardinal. Það er ástæða fyrir því að hún fór beint úr háskólaboltanum til Lyon, sem er eitt allra besta félagslið í heimi.

Macario er fjölhæfur leikmaður, en hún hefur sýnt það og sannað að hún er markaskorari af guðs náð.

Þessi öflugi leikmaður vakti mikla athygli í leik gegn Íslandi í fyrra en hún hefur ekkert spilað á yfirstandandi á tímabili vegna meiðsla. Það er vonandi að hún komi sterk til baka en hún mun koma til baka í búningi Chelsea.
Athugasemdir
banner