Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Flick ósáttur með sína menn - „Get ekki talað um dómarana"
Mynd: EPA
Barcelona tapaði 2-1 gegn Girona í gær og er tveimur stigum á eftir Real Madrid í titilbaráttunni í spænsku deildinni. Þetta var annað tap liðsins í röð en liðið tapaði fyrri leiknum í undanúrslitum bikarsins gegn Atletico Madrid 4-0 í síðustu viku.

Lamine Yamal klikkaði á vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiksins gegn Girona en Pau Cubarsi kom liðinu yfir. Thomas Lemar jafnaði metin og Fran Beltran tryggði Girona sigurinn.

Hansi Flick, stjóri Barcelona, var ekki sáttur með seinna markið þar sem hann taldi að brotið hafi verið á Jules Kounde í aðdragandanum.

„Það sáu allir hvað gerðist en ég get ekki talað um dómarana. Kannski myndi ég berjast fyrir þessu ef við spiluðum vel en við vorum svo slakir í kvöld," sagði Flick.

„Engar afsakanir. Dómararnir eru að vinna sína vinnu. Stundum gera þeir það ekki vel en við þurfum að líta í eigin barm. Stundum standa dómararnir sig jafn vel og við, sem var ekki gott."
Athugasemdir
banner
banner