Baldur Kári er miðjumaður sem uppalinn er hjá FH. Hann var í síðustu viku valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn, en hann mun fara með landsliðinu til Mexíkó.
Hann er U21 landsliðsmaður sem var í stóru hlutverki hjá FH á síðasta tímabili eftir að hafa verið í hlutverki tímabilið á undan. Hann á alls að baki 14 yngri landsleiki. Hann hefur bæði spilað á miðjunni og í vinstri bakverði og segir í dag frá hinni hliðinni á sér.
Hann er U21 landsliðsmaður sem var í stóru hlutverki hjá FH á síðasta tímabili eftir að hafa verið í hlutverki tímabilið á undan. Hann á alls að baki 14 yngri landsleiki. Hann hefur bæði spilað á miðjunni og í vinstri bakverði og segir í dag frá hinni hliðinni á sér.
Fullt nafn: Baldur Kári Helgason
Gælunafn: Baddi, Balli.
Aldur: Ný orðinn 21
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var 2021 á móti KA á Greifavellinum þegar Óli Jó setti mig inná. Ég kom við boltann akkúrat þegar dómarinn flautaði leikinn af og það var ekkert spes touch þannig það var bara fínt.
Uppáhalds drykkur: 7up free
Uppáhalds matsölustaður: Fiskfélagið
Uppáhalds tölvuleikur: Call of duty
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Já
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Horfi yfirleitt ekki á sjónvarpsþætti en mér finnst gaman að horfa á Ísskápastríð.
Uppáhalds tónlistarmaður: Frikki Dór
Uppáhalds hlaðvarp: Blökastið
Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fótbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Það er Steindi Jr
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: ”Hvað er passwordið í tölvuna þína?” frá kærustu minni.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Man U
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Rayan eða Roony Bardghji báðir frekar erfiðir.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Ég hef verið heppinn með marga góða þjálfara sem hafa hjálpað mér mikið þannig erfitt að velja einn.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Er með leikmenn í huga en vill ekki kveikja á mönnum fyrir tímabilið.
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Drogba og Messi voru helstu fyrirmyndirnar í boltanum.
Sætasti sigurinn: Íslandsmeistaratitillinn í 4. flokki var mjög sætur.
Mestu vonbrigðin: ÍBV úti seinasta sumar, það var mjög svekkjandi.
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Jónatan Ingi (Björn Daníel úr Sindra ef það væri hægt)
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Hafrún Birna Helgadóttir
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Böddi snoðaður er íslenski Brad Pitt
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Sæunn kærasta mín
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi, ekki spurning
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Innspark í staðinn fyrir innkast
Uppáhalds staður á Íslandi: Kaplakriki
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég skeit í mig á Króksmótinu í upphitun og þurfti samt að spila leikinn, vorum ekki með neina varamenn. Það er skemmtilegt eftir á.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Reima alltaf vinstri skóinn fyrst.
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Mjög mörgum, eins og handbolta, körfubolta, íshokkí, amerískum fótbolta, golfi og tennis
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas Predator með tungu
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Myndmennt var krefjandi útaf litblindu.
Vandræðalegasta augnablik: Það er nýliðavígslan hjá mér og Cole Campbell þegar við þurftum að syngja Shallow og byrjuðum á því að syngja ekki í takt við lagið og þurftum að byrja uppá nýtt. Svo var ég á mútum í þokkabót þannig þetta hljómaði ekkert alltof vel.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Van Dijk, Szobozslai og Ekitike. Ég myndi vilja hafa smá krísufund og ræða við þá hvort við þurfum ekki að fara reka Slot og fá Alonso inní þetta.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Jökull er mjög fyndinn í klefanum
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég væri til í að sjá Jökul í Love Island það væri eitthvað besta sjónvarp sem er hægt að fá.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Æfði Íshokkí í mörg ár.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Böddi. Ég var smá smeykur við hann þegar hann kom aftur í FH en svo reyndist hann vera frábær manneskja.
Hverju laugstu síðast: Laug að mömmu að ég hafi farið út með hundinn.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun (sorry Ben)
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spurja Ronaldo hvað hann borðar á leikdegi.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Vonandi mæta sem flestir og við búum til góða stemningu.
Athugasemdir


