Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
María Eva og Kolbeinn Nói framlengja í Laugardalnum
Kolbeinn Nói
Kolbeinn Nói
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Nói Guðbergsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Þrótt. Kolbeinn er fæddur árið 2007 en hann hefur spilað 34 leiki fyrir liðið.

„Eftir hverja "I'm Him"-frammistöðuna á eftir annari er Kolbeinn Nói búinn að framlengja samning sinn til þriggja ára," segir í tilkynningu frá Þrótti.

Þá hefur María Eva Eyjólfsdóttir skrifað undir nýjan tveggja ára samning við kvennalið félagsins. María gekk til liðs við félagið árið 2022 frá Fylki.

„María hefur fest sig í sessi sem einn besti hægri bakvörður deildarinnar og hlökkum við til næstu tveggja ára," segir í tilkynningu frá Þrótti.


Athugasemdir
banner
banner