Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
banner
   þri 17. febrúar 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sara Dögg semur á Suðurnesjum
Kvenaboltinn
Mynd: Grindavík/Njarðvík
Sara Dögg Sigmundsdóttir fagnaði 15 ára afmælinu sínu á dögunum með því að skrifa undir sinn fyrsta samning við Grindavík/Njarðvík.

Tilkynning félagsins
Sara Dögg hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Grindavík/Njarðvík sem gildir út árið 2028.

Sara Dögg er fædd árið 2011 og á 15 ára afmæli í dag sem hún fagnar því með að skrifa undir sinn fyrsta meistaraflokks samning.
Sara Dögg er alin upp hjá Njarðvík og hefur leikið með yngri flokkum Njarðvíkur auk þess sem hún á 8 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ með Grindavík/Njarðvík og eitt mark þrátt fyrir ungan aldur. Leikirnir og markið komu í fyrra í Lengjubikarnum og Mjólkurbikarnum.

Knattspyrnudeildir Grindavíkur og Njarðvíkur óska Söru Dögg innilega til hamingju með fyrsta samninginn!



Athugasemdir
banner
banner