Steve McClaren, fyrrum aðstoðarmaður Erik ten Hag hjá Man Utd, segir samband Cristiano Ronaldo og Erik ten Hag hafa einkennst af baráttu á æfingasvæðinu.
Cristiano Ronaldo yfirgaf United með í nóvember 2022 nokkrum dögum eftir umdeilt viðtal við Piers Morgan. Í viðtalinu gagnrýndi hann félagið, Glazer fjölskylduna og stjórann Erik ten Hag.
Cristiano Ronaldo yfirgaf United með í nóvember 2022 nokkrum dögum eftir umdeilt viðtal við Piers Morgan. Í viðtalinu gagnrýndi hann félagið, Glazer fjölskylduna og stjórann Erik ten Hag.
Ronaldo lét þung orð falla um ten Hag og sagðist ekki bera virðingu fyrir honum þar sem þjálfarinn sýndi sér enga virðingu. Tveimur árum síðar lét hann aftur óánægju sína í ljós og sagði hann Erik ten Hag vera of neikvæðan til að vera stjóri United.
Steve McClaren segir frá því í hlaðvarpinu The Good, The Bad and The Football að hann hafi reynt að sannfæra Cristiano Ronaldo um að fylgja einföldum fyrirmælum ten Hag til að tryggja sér sæti í liðinu.
„Það voru oft árekstrar á æfingasvæðinu. Ten Hag var kröfuharður. Ég sagði við Ronaldo að hann ætti að vera fremstur í pressu og ætti að taka nokkra spretti. Ef hann gæti ekki gert það þá myndi ten Hag ekki velja hann.
„Þetta var barátta. Ekki beinlínis rifrildi heldur barátta þar sem spurningin var hver myndi hafa betur. Erik stóð fast á sínu. Ég held að flestir þjálfarar hefðu lagað sig að þessu og komið til móts við leikmanninn. Sumir þjálfarar eru einfaldlega þannig. En hann stóð fast á sínu,“ sagði McClaren að lokum.
Athugasemdir




