Varnarmaðurinn Jón Gunnar Sæmundsson hefur ákveðið að taka fram skóna á ný og spila með Víði Garði í sumar.
Jón lék með Víði árin 2012-2017 og var meðal annars fyrirliði liðsins um tíma.
Samtals hefur Jón leikið 105 leiki fyrir Víði og skorað 7 mörk.
„Við bjóðum Jón Gunnar hjartanlega velkominn aftur og hlökkum til að sjá hann á vellinum," segir á Facebook síðu Víðis.
Víðir Garði endaði í 4. sæti í 2. deildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir