Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópubikar kvenna: 16 ára Rebekka kom inn gegn Frankfurt
Guðrún og stöllur áfram í næstu umferð
Kvenaboltinn
Mynd: Hammarby
Mynd: Aðsend
Öllum leikjum kvöldsins er lokið í Evrópubikar kvenna. Þar komst Íslendingalið Hammarby áfram í næstu umferð eftir vítaspyrnukeppni gegn Sporting.

Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í varnarlínu Hammarby á heimavelli í kvöld eftir frábæran sigur í fyrri leiknum í Portúgal.

Hammarby var talsvert sterkara liðið á heimavelli en tókst ekki að skora. Sporting náði að stela sigri með marki á 70. mínútu og því þurfti að grípa til framlengingar.

Hammarby var áfram betra liðið en tókst ekki að skora þar til flautað var til vítaspyrnukeppni. Heimakonur skoruðu úr öllum fimm spyrnunum sínum en Mackenzie Cherry klúðraði í liði gestanna.

Hammarby fer því áfram í næstu umferð og mætir Sparta Prag, sem lagði Austria frá Vínarborg eftir framlengdan slag í kvöld.

Nordsjælland er að lokum úr leik eftir tap á heimavelli gegn Eintracht Frankfurt. Nordsjælland steinlá í fyrri leik liðanna og tapaði svo heimaleiknum 2-3 í kvöld.

Hin 16 ára gamla Rebekka Sif Brynjarsdóttir kom inn af bekknum og fékk að spila síðasta hálftímann í liði Nordsjælland.

Hammarby 0 - 1 Sporting (1-1 samanlagt)
0-1 Telma Encarnacao ('70)
5-4 í vítaspyrnukeppni

Nordsjælland 2 - 3 Eintracht Frankfurt (2-7 samanlagt)

Austria Vín 1 - 3 Sparta Prag (1-3 samanlagt)
Athugasemdir
banner