Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. apríl 2021 15:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lacazette: Auðveldara að ræða nýjan samning ef við vinnum bikar
Mynd: Getty Images
Samningur Alexandre Lacazette, framherja Arsenal, rennur út næsta sumar. Lacazette kom til félagsins frá Lyon sumarið 2017.

Hann ræddi um samningsmálin í viðtali fyrir leik Arsenal og Fulham sem fram fór í dag.

„Planið er að vinna bikar með félaginu á þessari leiktíð, það myndi gera viðræðurnar auðveldari. En þetta liggur ekki allt á minni hlið," sagði Laca.

„Þetta er líka hjá félaginu og stjóranum. Það þarf að ræða aðra hluti og kannski ekki rétti tímapunkturinn til að ræða framlengingu á mínum samningi."

Lacazette verður þrítugur undir lok næsta mánaðar. Hann hefur skorað sautján mörk á leiktíðinni í öllum keppnum.

Arsenal er komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar og er sú keppni eina von félagsins á titli í vor.


Athugasemdir
banner
banner
banner