Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 18. september 2020 09:25
Magnús Már Einarsson
Bale búinn í læknisskoðun - Mætir til London í dag
Mynd: Getty Images
Gareth Bale er búinn að standast læknisskoðun hjá Tottenham en hann er á leið til félagsins á láni frá Real Madrid.

Bale fór í læknisskoðun í Madrid í gær og þar gekk allt snuðrulaust fyrir sig.

Bale mun mæta til London í dag til að skrifa undir hjá Tottenham.

Bale spilaði með Tottenham frá 2007 til 2013 áður en hann varð dýrasti leikmaður í heimi þegar Real Madrid keypti hann á 86 milljónir punda.

Sergio Reguilon, vinstri bakvörður Real Madrid, er einnig á leið til Tottenham en hann flýgur með Bale til London í dag.
Athugasemdir
banner
banner