Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. september 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Wolves kynnir nýja treyju sem er eins og hjá Portúgal
Nýr þriðji búningur Wolves.
Nýr þriðji búningur Wolves.
Mynd: Wolves
Wolves hefur kynnt nýjan þriðja búning fyrir tímabilið og hann hefur vakið talsverða athygli.

Búningurinn þykir vera mjög líkur portúgalska landsliðsbúningnum.

Portúgölsk tenging hefur verið hjá Wolves undanfarin ár en stjóri liðsins Nuno Espirito Santo er frá Portúgal.

Að auki eru níu leikmenn í leikmannahópi liðsins frá Portúgal.

Hér til hliðar má sjá nýja þriðja búniginn og hér að neðan má sjá mynd af portúgalska landsliðsbúningnum til samanburðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner