Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 18. desember 2022 14:39
Ívan Guðjón Baldursson
Hammed áfram í Víði
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hammed Obafemi Lawal er búinn að skrifa undir nýjan samning við Víði í Garði og mun því leika fyrir félagið þriðja árið í röð.


Hammed er 26 ára gamall og leikur ýmist sem vinstri bakvörður eða kantmaður.

Hann á yfir 100 keppnisleiki að baki hér á landi þar sem hann var leikmaður Vestra áður en hann skipti yfir í Garð.

Hann er mikilvægur hlekkur í liði Víðis og spilaði 18 deildarleiki af 22 er Víðismenn enduðu í fjórða sæti 3. deildar í sumar.

„Við erum virkilega ánægð með að halda honum innan okkar raða og erum spennt fyrir komandi tímabili," segir í yfirlýsingu frá Víði.


Athugasemdir
banner
banner
banner