Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 19. janúar 2023 00:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Reykjavíkurmótið: „Fínir Fylkismenn" töpuðu stórt gegn ÍR
Aron Daníel Arnalds
Aron Daníel Arnalds
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

ÍR 3 - 0 Fylkir
1-0 Aron Daníel Arnalds ('23 )
2-0 Óliver Elís Hlynsson ('57 )
3-0 Aron Fannar Hreinsson ('75 )


Fylkir hóf Reykjavíkurmótið af krafti á dögunum þegar liðið lagði KR með tveimur mörkum gegn engu en liðið rann á rassgatið gegn ÍR í dag.

Fylkir spilar í Bestu deildinni á næstu leiktíð en ÍR leikur í 2. deild.

ÍR sem tapaði 4-1 gegn Víkingi í fyrstu umferð komst yfir eftir 23 mínútu þegar Aron Daníel Arnalds skoraði en 1-0 var staðan í hálfleik.

Óliver Elís Hlynsson bætti öðru marki við eftir tæplega klukkutíma leik og Aron Fannar Hreinsson gerði út um leikinn með þriðja marki ÍR á 75. mínútu.

Sjá einnig:
Fylkir ekki að missa sig á markaðnum - „Við erum bara fínir"


Athugasemdir
banner
banner