Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. september 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bale meiddur og frá í mánuð?
Bale sagður vera glíma við hnémeiðsli.
Bale sagður vera glíma við hnémeiðsli.
Mynd: Getty Images
Sjúkrateymi Tottenham hefur samkvæmt heimildum Marca greint frá því að Gareth Bale verði frá í mánuð vegna meiðsla.

Bale er að ganga í raðir Tottenham að láni frá Real Madrid út leiktíðina sem nú er nýhafin.

Bale er sagður hafa verið að glíma við hnémeiðsli undanfarnar vikur en þar sem hann hefur verið að æfa einn að undanförnu þá var lítið vitað um meiðsin.

Tottenham er sagt hafa vitað af þessum meiðslum þegar félagið samþykkti að fá Bale til liðs við sig og því eru félagaskiptin ekki talin í uppnámi.

Hinn 31 árs gamli Bale lenti í London í gær og bíða stuðningsmenn eftir staðfestingu á félagaskiptunum. Einnig er beðið eftir staðfestingu á skiptum Sergio Reguilon frá Real til Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner