Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   lau 21. febrúar 2026 16:22
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Hrakfarir Juventus halda áfram - Fyrsta tapið á heimavelli
Mynd: EPA
Juventus 0 - 2 Como
0-1 Mergim Vojvoda ('11 )
0-2 Maxence Caqueret ('61 )

Juventus tapaði fyrsta heimaleik sínum í deildinni á þessari leiktíð er liðið laut í lægra haldi fyrir Cesc Fabregas og lærisveinum hans í Como, 2-0, í Seríu A í dag.

Allt er á afturfótunum hjá Juventus þessa dagana en liðið er svo gott sem úr keppni í Meistaradeildinni eftir óvænt 5-2 tap gegn Galatasaray og þá datt liðið úr ítalska bikarnum eftir 3-0 tap gegn Atalanta.

Úrslitin hafa ekki heldur verið að skila sér í deildinni en þar er liðið án sigurs í síðustu þremur leikjum.

Mergim Vojvoda skoraði á 11. mínútu með skoti sem fór beint á Michele Di Gregorio í markinu, en klaufaleg varsla hans stýrði boltanum í netið.

Franski miðjumaðurinn Maxence Caqueret setti síðan seinna markið hálftíma fyrir leikslok eftir hraða skyndisókn eftir hornspyrnu. Como-menn spiluðu boltanum frábærlega fram völlinn og á Lucas Da Cunha sem var óeigingjarn og sendi boltann til hliðar á Caqueret í stað þess að skjóta. Caqueret kláraði færið örugglega og þakkaði Da Cunha fyrir gjöfina.

Annar sigur Como á Juventus á þessu tímabili sem er í 6. sæti með 45 stig en Juventus einu sæti ofar með 46 stig.

Vondar síðustu vikur hjá Juventus sem ætlar þó að halda áfram að styðja við þjálfarann Luciano Spalletti. Samkvæmt félaginu verður hann áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner